Rétt myndastærð fyrir heimasíður!

Það er alltaf nokkur misskilningur í gangi hvað er rétt myndastærð fyrir heimasíður en rétt stærð skiptir mjög miklu máli fyrir þína heimasíðu. Þegar mynd er sett inn óþarflega stór gerir hún ekkert gagn en mikið ógagn, hægir á niðurhali á heimasíðunni og getur jafnvel valdið því að viðkomandi gestur hættir við.

Flestar myndavélar vista myndir 2MB eða stærri sem er um 3.000 pixla breið sem gagnast ekkert hvort sem er þegar þær eru skoðaðar í flestum tölvum spjaldtölvum og snjallsímum, flestar tölvur eru með skjái sem þola vel um 600 pixla í breidd og því engin þörf að hafa myndir enn stærri en það.

Í dag er það ekki bara að skipta máli fyrir þig og þína viðskiptavini að hafa myndir ekki óþarfa stórar og óþarfa þungar í niðurhali heldur hefur Google gefið út að þeir refsa vefum sem eru óþarfa þungir í niðurhali og færa þá neðar í sínu ranki.

Til að tryggja að myndir séu í lagi þurfa þeir sem nota WordPress vefumsjónarkerfi að minnka sínar myndir áður en þær eru settar á vefinn, WordPress er ekki með myndaforrit sem sér um þetta þó þú getir sett myndina í réttastærð á síðuna þá er hún samt eins stór og þung í vinnslu og þú settir hana inn. Það er mjög auðvelt að minnka myndir með forritum sem eru á nánast öllum vélum eins og td. Paint. Smellt er á Resize og Pixels valið þá getur í sett inn td. 600 í Horizontal og smellt á OK, ef þú vilt líka eiga myndina í upphaflegri stærð velur þú Save As (JPEG eða PNG gefa oftast bestu útkomu) og gefur nýrri mynda stærð nýtt nafn.



 


þriðjudag, júlí 29, 2014

« Til baka