Góðan dag,

Mælum með að hafa gistináttaskatt sem sér vöru þar sem hann hækkaði um áramót og að auki þarf ekki að greiða VSK af honum lengur.

Fyrir beinar bókanir er hann settur inn undir Bemar Settings Booking Engine / Upsell Items, eða óska eftir þessu bemar@bemar.is

Fyrir Booking þarf að óska eftir þessu frá viðkomandi Booking stjórnboði.

Fyrir Expedia þarf að óska eftir þessu frá viðkomandi Expedia stjórnboði.

Og eins varðandi aðra söluaðila eins og Travia þá þarf að óska eftir að gistináttaskattur verði settur inn sem sér vara ekki innifalinn í verði.

 

Fyrir þá gististaði sem eru með bókhaldskerfa samtengingu DK eða Payday er hægt að óska eftir viðbót sem flokkar gistináttaskatt frá sölufyrirtækjum og raðar á rétta vöru sem ber ekki VSK í bókhaldskerfi. ATH Airbnb getur ekki boðið sér vöru á nótu fyrir Gistináttaskatt, bætist samt við og getur þá verið örlítið hærri vegna VSK.

 

Sjá: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2024/12/20/Skattabreytingar-a-arinu-2025/

Frá og með 1. janúar 2025 verður ekki lengur skylt að telja gistináttaskatt til skattverðs VSK.

Gistináttaskattur fyrir hverja selda einingu 800 kr.



þriðjudag, janúar 14, 2025

« Til baka